Skemmtihelgi að Laugum

Ungmennaráð UMFÍ hefur staðið fyrir svipuðum helgum áður og hefur aðsókn verið góð. Í þetta skiptið komast aðeins 25 manns að. Fyrstir koma fyrstir fá.

Það eina sem þú þarft að gera er að senda upplýsingar um nafn, skóla og símanúmer á netfangið ungmennarad@umfi.is í síðasta lagi fyrir 8. nóvember.

Allur pakkinn er þér að kostnaðarlausu - það eina sem þú þarft að gera er að koma þér á staðinn.