Verkefnastjóri Flott án fíknar heimsótti nemendur í 7. bekk Sunnulækjarskóla á vordögum og kynnti verkefnið Flott án fíknar. Í lok kynningar veitti hún klúbbstjóranum Jóhönnu Einarsdóttur viðurkenningu frá UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu Flott án fíknar.
Klúbbstarfið í Sunnulækjarskóla hefur verið einstaklega blómlegt og hefur spurst út víðar í Árborg. Mikill áhugi er fyrir að efla starfið enn frekar í sveitarfélaginu og var óskað eftir því að kynna verkefnið enn frekar.