Fullskipað var en fjöldi takmarkaðist við 25 ungmenni. Saman komu ungmenni frá sex framhaldsskólum og náði hópurinn einstaklega vel saman.
Í þremur af þessum skólum eru skipulagðir bindindisklúbbar, Fjölbrautaskólanum Garðabæ, Verkmenntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum við Hamrahlíð en einnig voru nemendur frá Framhaldsskólanum að Laugum, Menntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum við Sund.
Fulltrúar ungmennaráðsins eru sammála um að vel hafi tekist til og áfram verði haldið að standa fyrir svipuðum helgum.