Fréttir

Meistararitgerð um Flott án fíknar

Flott án fíknar, þróunarverkefni í forvörum er 20 ECTS eininga lokaverkefni til meistaraprófs á námsbrautinni Stjórnunarfræði menntastofnana
við Háskóla Íslands. Guðrún Snorradóttir sem stýrt hefur verkefninu frá upphafi skrifaði rigerðina sem finna má hér í heild sinni. Lesa meira


Nemendum Sunnulækjarskóla kynnt verkefnið

Verkefnastjóri Flott án fíknar heimsótti nemendur í 7. bekk Sunnulækjarskóla á vordögum og kynnti verkefnið Flott án fíknar. Í lok kynningar veitti hún klúbbstjóranum Jóhönnu Einarsdóttur viðurkenningu frá UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu Flott án fíknar.
Lesa meira


Ungmenni á Vopnafirði til fyrirmyndar

Unglingar í grunnskólanum á Vopnafirði fengu heimsókn frá Flott án fíknar þann 11. febrúar. Það var Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og verkefnisstjóri Flott án fíknar, sem kynnti verkefnið.

Lesa meira


25 ungmenni komu saman að Laugum í Þingeyjarsýslu

Ungmennaráð UMFÍ hélt skemmtihelgi fyrir ungmenni frá 16-20 sem vilja skemmta sér án áfengis um s.l. helgi. Komið var saman að Laugum í Reykjadal að kvöldi föstudags og dvalið við leik, spil og spjall fram yfir hádegi á sunnudag. Lesa meira


Skemmtihelgi að Laugum

Helgina 13.-15. nóvember færð þú tækifæri til þess að prófa eitthvað nýtt. Ungmennaráð UMFÍ skipuleggur skemmtihelgi þar sem þú getur fengið að upplifa nýja og spennandi hluti - að sjálfsögðu án allra vímuefna. Skemmtihelgin verður að þessu sinni haldin í húsnæði Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal.

Lesa meira


Verkefnið kynnt á kennarþingi suðurlands

Forvarnaverkefnið Flott án fíknar var kynnt í morgun á kennaraþingi suðurlands á Flúðum við góðar undirtektir. Nú þegar er Sunnulækjarskóli á Selfossi farinn af stað með klúbb sem gengur vel og áhugi er hjá fleirum að feta í þeirra fótspor.

Lesa meira